Beint í efni

Heimsmarkaðsverð áburðar hátt nú, en mun lækka!

14.10.2011

Samkvæmt nýútkominni skýrslu Rabobank er útlit fyrir að verð á áburði á heimsmarkaðinum haldist hátt nú í lok þessa árs en fari svo lækkandi á næsta ári. Hátt verð nú um stundir mun þó ekki verða jafn hátt og þegar áburðarverð var sem hæst 2008/2009.

 

Skýringin á væntingum til lækkunar á næsta ári felast í óvissu varðandi fjármálastöðu í mörgum löndum og aukinni framleiðslu á áburði. Á meðfylgjandi mynd má sjá samantekt DairyCo á þróun áburðarverðs í Bretlandi sl. ár og áhrif verð á áburði á framleidda lítra mjólkur/SS.

 

Bláa línan sýnir meðalverð á áburði í Bretlandi og rauða línan vægi áburðarverðs af framleiddum mjólkurlíter.