Beint í efni

Heilgrillað naut á teini!

20.08.2004

Á morgun verður Menningarnótt í Reykjavík með tilheyrandi skemmtun. Kúabændur láta sitt ekki eftir liggja og verður heilt naut grillað á teini í tilefni dagsins. Þegar hefur verið útbúið gríðarlega stórt grill af Blikksmiðnum hf. og Gasco ehf., sem vafalítið er lang stærsta grill landsins.

Að verkefninu koma fjölmargir aðilar, s.s. Mjólkursamsalan í Reykjavík sem býður gestum og gangandi upp á mjólk með nautakjötinu, sem og kalda sósu úr sýrðum rjóma. Meistarakokkar frá Bautanum á Akureyri sjá um að nautið grillist sem best og SS leggur til nautið sem og kryddolíur.