Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Heildsöluverð mjólkurvara hækkar

31.08.2018

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum sem nefndin verðleggur, hækki um 4,86% þann 1. september nk., nema smjör sem hækkar um 15%. Vegin hækkun heildsöluverðs er 5,30%.

Lágmarksverð mjólkur til bænda hækkar um 3,52%, úr 87,40 kr. í 90,48 kr.

Verðhækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólkur, en síðasta verðbreyting fór fram 1. janúar 2017. Frá síðustu verðlagningu hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 3,60% og reiknuð hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar afurðastöðva hækkað um 7,14%. Nefndin samþykkti þessa niðurstöðu en annar fulltrúi velferðarráðherra greiddi atkvæði gegn henni.