Heildsöluverð á mjólk hækkar um 4,25%
22.06.2011
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið sameiginlega ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, hækki 1. júlí nk. um 4,25%. Þó hækkar smjör um 6,7% og mjólkurduft til iðnaðar um 6%.
Bændur fá 4,4% hækkun
Frá sama tíma hækkar afurðastöðvaverð til bænda um 3,25 kr. á lítra mjólkur, þ.e. úr 74,38 kr. í 77,63 kr., eða um 4,4%. Þá hækkaði vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur um liðlega 4,1%. Í tilkynningu frá Verðlagsnefnd búvara segir að ástæður þessara verðbreytinga séu vegna launabreytinga og hækkana á aðföngum við búrekstur.