Beint í efni

Haustfundir LK við Breiðafjörð

13.11.2007

Haustfundir Landssambands kúabænda á starfssvæði Félags nautgripabænda við Breiðafjörð verða sem hér segir:

 

Fimmtudaginn 15. nóvember í Dalabúð kl. 14. og í Birkimel á Barðaströnd kl. 20.30.

 

Frummælendur verða Þórólfur Sveinsson, formaður og Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK.

 

 

Helstu efnisatriði fundanna verða eftirfarandi:

  • Framleiðsla og sala mjólkur og nautakjöts á síðasta verðlagsári.
  • Verðlags og kjaramál og nokkur brýn hagsmunamál greinarinnar, s.s. útfærsla mjólkursamnings (minna framleiðslutengdur/markaðstruflandi stuðningur) og takmarkanir á flutningi nautgripa milli sk. varnarhólfa.
  • Kynning á greinargerðum sem unnar hafa verið að beiðni starfshóps sem skipaður var af stjórn LK í kjölfar aðalfundar 2006. M.a. kynnt greinargerð LBHÍ um rekstrarhagkvæmni nokkurra kúakynja, skoðanakannanir og rýnihópar Gallup um viðhorf neytenda og greinargerð frá SAM.
  • Framgangur ályktana frá aðalfundi Landssambands kúabænda 2007.