Haustfundir LK fimmtudaginn 25. október
25.10.2012
Í dag eru þrír haustfundir Landssambands kúabænda og hefjast þeir allir kl. 12.00. Fundirnir eru haldnir á Hótel Höfðabrekku í Mýrdal, í Birkimel á Barðaströnd og á Hótel Ísafirði. Fundirnir eru allir sameiginlegir með BÍ. Á fundunum fara forsvarsmenn LK yfir helstu málefni búgreinarinnar, nýframlengdan mjólkursamning, framleiðslu, sölu og verðlagsmál mjólkurafurða, stöðu og afkomu nautakjötsframleiðslunnar, greiðslumarksviðskipti, leiðbeiningar um góða framleiðsluhætti, veffræðslu LK, ásamt því að farið verður yfir nýjan búnaðarlagasamning, sauðfjár- og garðyrkjusamning. Bændur eru hvattir til að fjölmenna! /BHB