Haustfundir LK á Vesturlandi og Norðurlandi vestra
02.11.2007
Haustfundir Landssambands kúabænda á Vesturlandi verða sem hér segir:
Í Hótel Borgarnesi mánudaginn 5. nóvember kl. 13. og Kaffi Kjós kl. 20.30
Frummælendur á fundunum verða Þórólfur Sveinsson, formaður og Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri.
Miðvikudaginn 7. nóvember kl. 14 í Ásbyrgi, Vestur-Húnavatnssýslu.
Frummælendur á fundinum verða Þórólfur Sveinsson, formaður og Guðný Helga Björnsdóttir, ritari LK.
Helstu efnisatriði fundanna verða:
- Framleiðsla og sala mjólkur og nautakjöts á síðasta verðlagsári.
- Verðlags og kjaramál og nokkur brýn hagsmunamál greinarinnar, s.s. útfærsla mjólkursamnings (minna framleiðslutengdur/markaðstruflandi stuðningur) og takmarkanir á flutningi nautgripa milli sk. varnarhólfa.
- Kynning á greinargerðum sem unnar hafa verið að beiðni starfshóps sem skipaður var af stjórn LK í kjölfar aðalfundar 2006. M.a. kynnt greinargerð LBHÍ um rekstrarhagkvæmni nokkurra kúakynja, skoðanakannanir og rýnihópar Gallup um viðhorf neytenda og greinargerð frá SAM.
- Framgangur ályktana frá aðalfundi Landssambands kúabænda 2007.