Haustfundir LK á Norðvesturlandi
19.10.2009
Haustfundur LK í Húnaþingi verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi fimmtudaginn 22. október kl. 13.30. Fundurinn er sameiginlegur fyrir Félag kúabænda í Austur-Húnavatnssýslu og Nautgriparæktarfélag Vestur-Húnavatnssýslu.
Haustfundur LK í Skagafirði verður haldinn í Mælifelli á Sauðárkróki fimmtudaginn 22. október kl. 20.30.
Á fundinum verður farið yfir eftirfarandi atriði:
• Markaðs- og verðlagsmál mjólkur og nautakjöts
• Umsókn Íslands um aðild að ESB
• Tillögur að breytingum á reglum um flokkun mjólkur
• Breytingu á tilhögun C-greiðslna
• Tillögur að lausnum á skuldamálum kúabænda
• Verðþróun lykilaðfanga og ýmis önnur atriði er varða starfsumhverfi stéttarinnar.
Kúabændur eru hvattir til að fjölmenna!