
Haustfundir LK 2019
24.10.2019
Boðað er til haustfunda Landssambands kúabænda og verða þeir haldnir á eftirfarandi stöðum:
Miðvikudaginn 30.október kl. 20:30 – Þingborg, Flóa.
Fimmtudaginn 31.október kl. 12:00 – Lyngbrekka, Borgarbyggð.
Fimmtudaginn 31.október kl. 20:30 – Ásgarður, Kjós.
Föstudaginn 1.nóvember kl. 12:00 – Sveitasetrið Gauksmýri.
Föstudaginn 1.nóvember kl. 12:00 – Hótel Ísafjörður.
Föstudaginn 1.nóvember kl. 20:30 – Ljósheimar, Skagafirði.
Mánudaginn 4.nóvember kl.12:00 – Hlíðabær, Eyjafirði.
Mánudaginn 4.nóvember kl.20:30 – Breiðumýri, Þingeyjasýslu.
Mánudaginn 4.nóvember kl.13:00 – Mjólkurstöðin í Búðardal.
Þriðjudaginn 5.nóvember kl.12:00 – Hótel Tangi, Vopnafirði.
Þriðjudaginn 5.nóvember kl.12:00 – Hvoll, Hvolsvelli.
Þriðjudaginn 5.nóvember kl.20:30 – Hótel Hérað, Egilsstöðum.
Miðvikudaginn 6.nóvember kl. 12:00 – Flatey á Mýrum.
Miðvikudaginn 6.nóvember kl.20:30 – Kirkjubæjarstofa, Kirkjubæjarklaustri.
Framsögumenn á fundunum verða Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda, Jóhanna María Sigmundsdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna og Höskuldur Sæmundsson, verkefnastjóri samtakanna í markaðsfærslu nautakjöts.
Félagsmenn LK og allt áhugafólk um málefni greinarinnar er hvatt til að mæta!
Nánari upplýsingar um fundina má nálgast á heimasíðu samtakanna naut.is.
Stjórn Landssambands kúabænda