
Haustfundir LK
28.09.2004
Þessa dagana er verið að ganga frá skipulagi Haustfunda LK 2004. Haldnir verða 14 fundir um allt land og verður fyrsti fundurinn þriðjudaginn 26. október og sá síðasti fimmtudaginn 11. nóvember. Nánari upplýsingar um fundina verða birtar á vefnum á næstu dögum, sem og í Bændablaðinu sem kemur út 12. október nk.