Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Haustfundir Landssambands kúabænda 2011

04.10.2011

Fyrsti haustfundur Landssambands kúabænda 2011 verður haldinn í Þingborg í Flóa fimmtudaginn 13. október n.k. kl. 20.30. Á fundinum verður stefnumörkun Landssambands kúabænda til 2021 kynnt í fyrsta sinn. Stefnumörkunin lýsir framtíðarsýn búgreinarinnar til næstu 10 ára, auk þess sem hún útlistar með hvaða hætti LK hyggst starfa á næstu árum til hagsbóta fyrir íslenska nautgriparækt. Auk stefnumörkunarinnar verða til umfjöllunar á fundunum framleiðslu-, sölu- og afkomumál, framkvæmd mjólkursamnings, staða lánamála bænda, greiðslumark mjólkur og kvótamarkaður, breytingar á laga- og regluumhverfi greinarinnar og staða umsóknar Íslands að ESB. Aðrir haustfundir verða sem hér segir:

Mánudagur 17. október: Hótel Hvolsvöllur kl. 12 og Hótel Geirland kl. 20.30.

Þriðjudagur 18. október: Seljavellir A-Skaft. kl. 12 og Gistihúsið Egilsstöðum kl. 20.30.

Miðvikudagur 19. október: Breiðamýri S-Þing. kl. 12. og Hótel KEA kl. 20.30.

Fimmtudagur 20. október: Mælifell Sauðárkróki kl. 12 og Blönduós kl. 20.30 (nánari staðsetning auglýst síðar).

Föstudagur 21. október: Hótel Hamar Borgarnesi kl. 12.

 

Mánudagur 24. október: Ásbyrgi V-Hún. kl. 12 og MS Búðardal kl. 20.30.

Miðvikudagur 26. október: Friðarsetur Holti í Önundarfirði kl. 12 og Kaffi Kjós kl. 20.30./BHB