Hátíð út í heim 2011
25.10.2010
Vélfang ehf. og Icelandair taka nú höndum saman og efna til “Hátíðar út í heim 2011”. Stefnan er tekin á eina stærstu landbúnaðarsýningu í heimi, SIMA 2011 í París, þar sem að allir geta fundið eitthvað áhugavert við sitt hæfi. Óhætt er að segja að síðustu “hátíðir” sem farnar voru á árunum 1995-2007 hafi staðið undir nafni, allir skemmt sér konunglega og margt skemmtilegt gerst. Nú verður haldið af stað aftur og eins og áður er markmiðið að blanda saman vinnu, skemmtun og fríi. Allir eru velkomnir
með í þessa ferð en hafa ber í huga að um takmarkað sætaframboð er að ræða en ”fyrstir koma fyrstir fá”. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband sem fyrst.
Lagt verður af stað frá Keflavík til Frankfurt 13. febrúar og flogið heim frá París 21. febrúar. Á leiðinni frá Frankfurt til Parísar verða heimsóttar verksmiðjur Fendt, CLAAS og Kuhn.
Innifalið í verði er:
Flug og gisting í 8 nætur en gist er á Best Western Ronceray Opéra í París. Morgunverður er innifalinn og fullt fæði í 4 daga, flugvallaskattar og bókunargjald.
Verð á mann í tvíbýli er 124.500 kr.
Verð á mann í einbýli er 154.900 kr.
Allar upplýsingar um bókanir hjá starfsmönnum Vélfangs í s. 580-8200 eða með tölvupósti á velfang@velfang.is.