
Hálfs árs innvigtun komin í 77,9 milljónir
03.08.2021
Samkvæmt nýju yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM), sem nær yfir tímabilið frá byrjun júlí í fyrra til lok júní í ár, var innvigtun mjólkur fyrstu sex mánuði þessa árs 77,9 milljónir lítra en á sama tíma í fyrra nam innvigtunin 80,3 milljónum lítra. Munurinn nemur alls 2,4 milljónum lítra sem er 3% minna í ár en í fyrra.
Í yfirlitinu kemur einnig fram að sala á bæði fitu- og próteingrunni er farin að taka við sér en sala á fitugrunni hefur aukist um 1,3% frá fyrra ári þegar litið er til síðustu 3 mánaða og 8,2% ef litið er til júnímánaðar. Sala á próteingrunni hefur aukist um 2% á síðustu 3 mánuðum og 8,12% í júnímánuði. Alls nam fitusalan 143 milljónum lítra sem er samdráttur á 12 mánaða tímabili um 1%. Sala á próteingrunni nam 122,2 milljónum lítra sem er samdráttur um 2,5% á 12 mánaða tímabili.
Í júní sl. var innvigtunin heldur minni en í sama mánuði í fyrra. Alls nam innvigtunin 13,4 milljónum lítra en í fyrra var hún 14,0 milljónir lítra í sama mánuði og munar þar um 4,6%. Enn sem komið er er marsmánuður eini mánuður ársins þar sem innvigtun hefur verið meiri en árið áður. Innvigtun síðustu 12 mánuði er nú í 148,8 milljónum lítra, sem er samdráttur um 3,7%.