Hætta á beinþynningu í Asíu
11.02.2014
Ný skýrsla frá alþjóðasamtökunum IOF, sem eru samtök um beinþynningarmál, sýnir að það er mikil hætta á því að stóraukinn fjöldi íbúa landanna í Asíu muni líða af beinþynningu á komandi árum ef ekki verða breytingar á neysluvenjum fólks. Þannig sýnir skýrslan t.d. að hættan á því, fyrir íbúa í Asíu, á að fá beinþynningu hefur tvö- til þrefaldast á síðustu 30 árum.
Samtökin sjá fyrir að nærri helmingur allra þeirra sem þjást muni af beinþynningu árið 2050 muni á þeim tíma búa í Asíu. Þó megi snúa þessari þróun við með því að stunda hreyfingu og auka neyslu á kalki og D-vítamíni eins og flestir vita hér á landi/SS.