Beint í efni

Hægt að sjá efnagreiningarvottorð áburðar á Netinu

13.03.2008

Á vef Áburðarverksmiðjunnar er skýrt frá því að fyrstu áburðarskipin séu að leggjast að landinu eitt af öðru. Með hverjum farmi fylgir efnagreiningarvottorð um innihald næringarefna í hverri tegund fyrir sig og hafa forsvarsmenn Áburðarverksmiðjunnar ákveðið að birta þær niðurstöður á heimasíðu sinni. Einnig er sagt frá því að mjög strangt eftirlit sé með framleiðslunni og að hvergi sé slakað á í þeim efnum. Vottorðin eru hluti af öflugu gæðastýringarkerfi Áburðarverksmiðjunnar sem tryggir mikil gæði þess áburðar sem boðið er upp á. Vottorðin má sjá hér á heimasíðu Áburðarverksmiðjunnar.