Beint í efni

Guðrún Hulda nýr ritstjóri Bændablaðsins

22.04.2022

Guðrún Hulda Pálsdóttir hefur verið ráðin nýr ritstjóri Bændablaðsins og tekur við af Herði Kristjánssyni þann 1. júní næstkomandi. Guðrún Hulda er öllum hnútum kunn á Bændablaðinu en hún hefur starfað þar síðastliðin sjö ár sem blaðamaður, auglýsingastjóri og umsjónarmaður Hlöðunnar.

„Staða Bændablaðsins er sterk því lesendur vita að þeir geta gengið að innihaldsríkri umfjöllun, óvæntri þekkingu og mikilvægum upplýsingum, auk þess sem blaðið er vettvangur fyrir áhugaverð skoðanaskipti. Ég mun halda áfram þeirri vegferð sem Hörður hefur, með þvílíkri natni og eljusemi, leitt undanfarin ár. Við erum lítill en samhentur hópur sem stöndum að blaðinu og munum áfram miðla upplýsandi fregnum af landbúnaði og fjölbreyttum málefnum honum tengdum á skýran og heiðarlegan hátt,“ segir Guðrún Hulda.

Guðrún Hulda hefur 15 ára reynslu í fjölmiðlum. Áður en hún kom til starfa á Bændablaðinu starfaði hún hjá tímaritinu Eiðfaxa sem ritstjóri og blaðamaður og þar áður hjá Morgunblaðinu. Guðrún Hulda er með BA gráðu í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og nam Umhverfis- og auðlindafræði á meistarastigi í sama skóla.

Bændablaðið er eitt vinsælasta og útbreiddasta dagblað landsins sem kemur út í 32.000 eintökum á tveggja vikna fresti. Blaðinu er dreift inn á öll lögbýli en einnig er hægt að nálgast blaðið á ýmsum bensínstöðvum og í verslunum.