Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Greinargerð um kvótaviðskipti

18.12.2018

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) hefur skilað greinargerð sinni um sölu og kaup á greiðslumarki mjólkur sem unnin var fyrir Bændasamtök Íslands og Landssamband kúabænda. Höfundar skýrslunnar eru fjórir, þau Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, Helga Einarsdóttir, Hjalti Jóhannesson og Vífill Karlsson.

Kynning á Netinu miðvikudaginn 19. des. kl. 13.00 - leiðbeiningar um innskráningu

Miðvikudaginn 19. desember kl.13:00 munu höfundar greinargerðarinnar kynna vinnuna á veffundi sem er öllum aðgengilegur. Áhorferndur fá tækifæri til að spyrja út í vinnuna og niðurstöður á fundinum.

Hægt er að fylgjast með kynningunni með því að skrá sig inn hér. Opnað er fyrir innskráningar kl. 12:45 og hefst kynningin kl. 13:00. Hægt er að senda inn skriflegar spurningar með því að smella á hnappinn „chat” fyrir miðju neðst á síðunni. Spurningarnar birtast einungis þeim sem fara með kynninguna og munu þau svara þeim í þeirri röð sem þær berast.

Athugið að einungis er pláss fyrir 100 tengingar á meðan kynningunni stendur. Fari fjöldinn yfir það berst viðkomandi tilkynning um að ekki sé hægt að tengjast fundinum. Upptaka verður gerð aðgengileg á vefnum eins fljótt og hægt er í framhaldi fundar.

Horft til miðlægs kvótamarkaðar

Verkefni RHA fólst í því að skoða mögulegar útfærslur á viðskiptum með greiðslumark og gera grein fyrir líklegum kostum og göllum hverrar leiðar fyrir sig. Bæði er átt við kosti og galla út frá hagfræðilegu og samfélagslegu sjónarhorni. Í greinargerðinni eru reifaðir helstu kostir og gallar fyrrverandi kerfa og þau áhrif sem leiðirnar hafa haft í för með sér á fjölda og stærð býla, mannfjöldaþróun, verðlag á greiðslumarki o.fl. Í greinargerðinni er litið yfir þau viðskiptaform sem hafa verið með kvóta hérlendis, sem og hvernig þessum málum er háttað í ESB, Svíþjóð, Noregi og Nýfundnalandi og Labrador (Kanada).

Tillaga RHA gerir ráð fyrir kvótamarkaði líkt og þeim sem var starfræktur frá 2010-2016. Hins vegar er gert ráð fyrir ákveðnu þaki á greiðslumarki til hvers og eins. Einnig eru skoðaðar þrjár nánari útfærslur; a) kvótamarkaður með þaki og svæðisskiptingu, b) kvótamarkaður með þaki, svæðisskiptingu og kröfum um eignarhald og c) tvö aðskilin kerfi; stór- og fjölskyldubú.

Greinargerðin: Greiðslumark mjólkur - Tillögur og leiðir vegna sölu og kaupa

21.12.2018: UPPTAKA