Greiðslumarkið verður 117 milljónir lítra
13.07.2007
Reglugerð um greiðslumark mjólkur verðlagsárið 2007-2008 hefur nú verið gefin út og má sjá hana með því að smella hér. Helstu breytingar eru að greiðslumarkið hækkar um 1 milljón lítra, fer úr 116 í 117 milljónir lítra. Það er aukning upp á 0,86% frá fyrra ári.
Hlutfallsleg skipting milli A, B og C greiðslna er óbreytt frá yfirstandandi verðlagsári. Beingreiðsla á líter verður kr. 34,30 m.v. vísitölu neysluverðs 273,0 eins og hún er í júlí 2007. Þá kemur í fyrsta skipti til greiðslu sk. óframleiðslutengdur og/eða minna markaðstruflandi stuðningur en í þann lið eru settar rúmlega 58 milljónir kr. m.v. áðurnefnda VNV. Lækka beingreiðslurnar sem því nemur. Verður þeim fjármunum ráðstafað með tvennum hætti: tæpar 49 milljónir fara í eingreiðslu út á greiðslumark, án framleiðslutengingar, eins og það stendur 1. september n.k. 9,5 milljónir fara í þróunarfé nautgriparæktarinnar. Heildarstuðningur hins opinbera lækkar um 1% að raungildi, eins og það mun gera árlega frá upphafi til loka gildistíma samnings um starfsskilyrði mjólkurframleiðslunnar. Samningurinn rennur út þann 31. ágúst 2012.