Beint í efni

Greiðslumark ársins 2024 verður 151,5 milljónir lítra

06.11.2023

Framkvæmdanefnd búvörusamninga samþykkti í lok seinustu viku, að greiðslumark mjólkur á árinu 2024 verði 151,5 milljónir lítra. Um er að ræða 1,7% aukningu frá yfirstandandi ári, eða 2,5 milljónum lítra.

Ákvörðunin var tekin og tilkynnt fyrr en alla jafna til að gefa kúabændum meiri fyrirsjáanleika og svigrúm til að aðlaga sig að aukningunni. Hækkunin er tilkomin vegna aukinnar sölu mjólkurafurða en söluaukningin hefur verið meiri á árinu en síðustu ár, t.a.m. var greiðslumarkið 144 milljónir lítra árið 2017, 145 milljónir árin 2018-2021, 146,5 milljónir lítra fyrir 2021, 149 milljónir lítra á þessu ári og fer í 151,5 á því næsta.

Bændum verður heimilt að setja fyrrgreint magn á innanlandsmarkað á næsta ári og fá opinbert lágmarksverð fyrir sem nú nemur tæpum 130 krónum á lítra.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun gefa út reglugerð vegna greiðslumarksins síðar á árinu og mun hún taka gildi 1. janúar 2024.