Beint í efni

Gömlu lundirnar frá Nýja-Sjálandi

16.02.2007

Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld, hafa að undanförnu verið til sölu frosnar nautalundir frá Nýja-Sjálandi, sem eru orðnar nokkuð gamlar. Myndin hér að neðan er tekin í ágústmánuði 2006 í verslun Hagkaups í Kringlunni.

 Slátrunardagur gripsins er 20. desember 2004 og síðasti neysludagur er 20. desember 2006. Varan er því orðin um 20 mánaða gömul á þessum tímapunkti. Yfir þessa merkingu hafði verðmiði vörunnar síðan verið límdur, en hann má sjá til vinstri á myndinni. Af honum mátti ráða að pökkunardagur vörunnar hefði verið fáeinum dögum áður, sem er að sjálfsögðu ekki rétt eins og kemur fram á myndinni.