Góð sala nautakjöts
17.08.2010
Sala á nautakjöti sl. 12 mánuði hefur verið afar góð og þrátt fyrir minna framboð á nautgripum til slátrunar sl. júlí, m.v. sama tíma í fyrra, er 4,8% aukning á ársgrunni í sölu og 4,1% í framleiðslu. Á sama tíma hefur orðið þónokkur samdráttur í sölu á bæði kinda- og svínakjöti, en þess ber þó að geta að góð sala var á lambakjöti í júlí sem dregur heldur úr neikvæðu gengi þeirrar kjöttegundar á liðnum misserum. Alífuglakjöt heldur áfram að seljast í mestu magni hér á landi og nam 12 mánaða söluaukning þess 4,8%.
Í júlí var framboð
á kúm og kvígum nokkuð minna en í júlí í fyrra, sem er áhrifamesta skýringin á því afhverju framleiðsluminnkun upp á 3,6% varð miðað við júlí í fyrra.
Ef horft er til nánari sundurliðunar talna um nautakjötið má sjá að af heildarsölunni síðustu 12 mánuði, upp á 3.833 tonn, þá er hlutfall ungnauta 57,5% heildarmagnsins.
Nánar má lesa um framleiðslu og sölu á kjöti á vef Bændasamtaka Íslands með því að smella hér.