Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Góð sala á sama tíma og innvigtun minnkar

17.05.2017

Samkvæmt nýútkomnu yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var sala á fitugrunni 140,9 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (maí 2016-apríl 2017). Það er aukning frá fyrra ári um 5,3%. Síðustu þrjá mánuði (febrúar 2017-apríl 2017) nam söluaukningin 3,4% miðað við sama tímabil fyrir ári.

Sala á próteingrunni undanfarna 12 mánuði var 129,8 milljónir lítra, sem er aukning um 4,6% frá árinu á undan. Ef litið er til síðustu þriggja mánaða nam söluaukningin á próteingrunni þó ekki nema 0,8%.

Innvegin mjólk undanfarna 12 mánuði var 148,0 milljónir lítra, sem er 2,0% samdráttur frá árinu á undan og sé litið til nýliðins mánaðar í samanburði við sama mánuð í fyrra er samdrátturinn 6,3%. Það sem af er ári er innvigtunin 4,4% minni í samanburði við sama tímabil í fyrra. Á sama tíma hefur orðið heildaraukning í sölunni og því er, líkt og í síðasta mánuði, söluþróun og innvigtun að þróast í verulega ólíkar áttir/SS.