Gjaldþrot fátíð í norskum landbúnaði
14.01.2003
Árið 2002 fjölgaði gjaldþrotum á milli ára í norskum landbúnaði meira en í nokkurri annarri þarlendri atvinnugrein, eða um 69%. Þannig fóru 66 bú í þrot árið 2002 en einungis 39 árið 2001. Niðurstöður síðasta árs víkja þó ekki verulega frá meðaltalinu, þar sem árið 2001 skar sig verulega úr. Þess ber að geta að þrátt fyrir að hlutfallareikningar sýni miklar breytingar, þá er tíðni gjaldþrotanna minna en eitt prómill af heildarfjölda búa.
Heimild: www.lantbruk.com