Gjaldtaka fyrir ráðgjafarþjónustu
28.02.2013
Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið hefur staðfest að Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf. hafi heimild til þess að innheimta að hámarki kr. 5.000 auk virðisaukaskatts pr. klst. fyrir vinnu að sérfræðistörfum sem falla undir búnaðarlög (skv. 7. gr. búnaðarlagasamnings, dags. 28. sept. 2012, sbr. 3. mgr. 3. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998, með síðari breytingum).
Ný gjaldskrá kemur í stað gildandi gjaldskrár fyrir þjónustu sem Bændasamtök Íslands hafa veitt samkvæmt búnaðarlagasamningi (gjaldskrá nr. 1079/2008) auk sambærilegra gjaldskráa búnaðarsambandanna vegna þjónustu sem fellur undir búnaðarlög.
Að sögn forsvarsmanna Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins verður ný gjaldskrá kynnt áður en langt um líður en hún er í vinnslu.