
GEA með áhugaverða nýjung
24.10.2016
Mjaltatækjaframleiðandinn GEA hefur nú kynnt áhugaverða nýjung en það er nýr greiningabúnaður sem er tengdur við hinn fullkomna mjaltakross GEA sem kallast IQ og sem er notaður við hefðbundnar mjaltir. Búnaðurinn sem nú hefur verið kynntur er leiðnimælir sem mælir mjólkina frá hverjum júgurhluta og meti tölvubúnaðurinn mjólkina ekki í lagi, getur sjálfvirkur nemi séð til þess að mjólkin fari ekki í þá lögn sem liggur fram í tank heldur í aðra sem fer t.d. í kálfa eða niðurfall. Þannig getur búnaðurinn séð um að halda frumutölunni lágri í tankinum.
Þetta er einkar áhugaverður búnaður og verður fróðlegt að sjá og heyra nánar um það hve mikið þessi tæknibúnaður kostar og hvort reksturinn á honum sé einfaldur. Hinn nýji búnaður kallast GEA CMIQ og verður frumsýndur á EuroTier landbúnaðarsýningunni í Hannover í nóvember/SS.