Beint í efni

Gamlar fregnir

05.11.2019

Það getur verið hið besta skemmtiefni að gleyma sér í gömlum blöðum og ritum.

Á Tímarit.is má finna fjöldann allan af blöðum sem Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn heldur utan um.

Sumar fréttir eru nokkuð fjarri umhverfi greinarinnar í dag en það þarf ekki að leita lengi til að finna efni frá því fyrir 1950 sem við tengjum við að einhverju leyti.

Vilji menn lesa gömul Búnaðarrit, Bændablöð, rit búnaðarsambanda, hagskýrslur landbúnaðarins eða rit sérstakra landshluta er hægt að gera slíkt þar.