Fyrsti fyrirlestur veffræðslu LK
25.10.2012
Fyrsti fyrirlestur veffræðslu Landssambands kúabænda er nú aðgengilegur á naut.is, en í honum fer Berglind Ósk Óðinsdóttir yfir ótvíræða kosti NorFor fóðurmatskerfisins í máli og myndum. Þeir sem eru nú þegar komnir með aðgang smella á hlekkinn hér að neðan og slá inn notendanafn og lykilorð. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang eru að sjálfsögðu hvattir til að gera slíkt sem fyrst með því að senda línu á skrifstofa@naut.is. /BHB