Beint í efni

Fyrsti fósturvísakálfurinn úr innlendu fósturvísunum fæddur

04.11.2020

Fyrirhugað er að flytja kálfinn á nautastöðina Hesti til sæðistöku. Kálfurinn er undan Draumi ET 18402 sem er undan First Boyd fra Li NO 74033 og Birnu ET 1662742 sem er undan Li’s Great Tigre. Birna er langvaxin og var með mesta vaxtarhraðann af kvígunum en Draumur var með mesta vöxtinn af nautunum sem fædd voru 2018. Kálfurinn hefur verið nefndur Skugga-Sveinn.