Fyrsta tölublað Freyju 2013 komið út
11.03.2013
Í gær kom út fyrsta tölublað búnaðarblaðsins Freyju árið 2013. Í blaðinu kennir ýmisa grasa að vanda. Fjallað er um nýliðun í nautgripa- og sauðfjárrækt og tveir landsþekktir veðurfræðingar gera illviðrinu 10. og 11. september góð skil. Katrín Andrésdóttir og Jóhannes Sveinbjörnsson taka síðan upp þráðinn þaðan sem frá var horfið í síðasta blaði, svo eitthvað sé nefnt.
Í upphafi þessa útgáfuárs fórum útgefendur Freyju yfir stöðuna og þá reynslu sem safnast hefur í sarpinn síðustu tvö ár. Í kjölfarið var tekin sú ákvörðun að hætta útgáfu blaðsins á prentuðu formi, þar sem slíkt var bæði tímafrekt og stóð ekki undir sér kostnaðarlega. Útgefendurnir ætla þó að halda ótrauð áfram í útgáfustarfinu á vefnum og nýta fjármuni og vinnustundir fremur í að efla blaðið sem veftímarit segir m.a. í ritstjórnarpistli blaðsins.
Bæði er hægt að lesa blaðið á heimasíðu útgáfufélagsins, sem og hlaða því niður sem pdd-skjali. Smelltu hér til þess að fara yfir á heimasíðuna/SS