
Fyrsta matvælastefnan fyrir Ísland kynnt
11.12.2020
Fyrsta matvælastefnan sem unnin hefur verið fyrir Ísland var kynnt á streymisfundi í gær ásamt rúmlega 30 liða aðgerðaáætlun. Matvælastefnan er mörkuð til 10 ára, til ársins 2030 og aðgerðaáætlun verður endurskoðuð eftir 5 ár. „Stefnan og er ætlað að vera leiðbeinandi við ákvarðanatöku hins opinbera til að stuðla að aukinni verðmætasköpun í matvælaframleiðslu hér á landi, tryggja matvælaöryggi og auka velferð fólks í sátt við umhverfi og náttúru“, segir í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Matvælastefna fyrir Ísland er mótuð með aðkomu ólíkra aðila sem hafa mikla og breiða þekkingu á málaflokknum, hagsmunaaðila og samtaka þeirra. Stefnan er mörkuð til 10 ára, til ársins 2030 og er ætlað að vera leiðbeinandi við ákvarðanatöku hins opinbera til að stuðla að aukinni verðmætasköpun í matvælaframleiðslu hér á landi, tryggja matvælaöryggi og auka velferð fólks í sátt við umhverfi og náttúru.
Matvælastefna Íslands er lifandi stefna sem mun taka mið af þróun og breytingum næstu ára og áratuga. Henni fylgir aðgerðaáætlun í rúmlega 30 liðum sem verður endurskoðuð að fimm árum liðnum. Ráðherrar í ráðherranefnd um Matvælastefnu, munu skipa fulltrúa hvers ráðuneytis í aðgerðastjórn til að fylgja eftir aðgerðaáætluninni.
Hér má sjá kynningarmyndband um Matvælastefnu
Í verkefnisstjórn um mótun matvælastefnu fyrir Ísland sátu eftirfarandi aðilar:
- Vala Pálsdóttir, formaður, skipuð án tilnefningar
- Ingi Björn Sigurðsson, skipaður án tilnefningar
- Gunnar Sigurðarson, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins
- Anna Guðmundsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
- Sigurður Eyþórsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
- Gunnar Egill Sigurðsson, tilnefndur af Samtökum verslunar og þjónustu
- Þuríður Hjartardóttir, tilnefnd af Neytendasamtökunum
- Jakob Einar Jakobsson, tilnefndur af Samtökum ferðaþjónustunnar
- Kári Gautason, skipaður án tilnefningar
- Rakel Garðarsdóttir, skipuð án tilnefningar
- Þórarinn H. Ævarsson, skipaður án tilnefningar
Einnig sátu í verkefnisstjórninni þau Hrönn Ólína Jörundsdóttir og Arnljótur Bjarki Bergsson fyrir hönd Matís, Ragnheiður Héðinsdóttir frá Samtökum iðnaðarins og Brynja Laxdal frá Matarauði. Þá starfaði María Guðjónsdóttir með verkefnisstjórninni.
Hér má finna Matvælastefnu fyrir Ísland til 2030
Hér má finna aðgerðaáætlun stefnunnar
Vefsíða stefnunnar er: www.matvælastefna.is