Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Fyrirmyndarbú og Mjólkureftirlitið sameinast í Gæðaeftirlit Auðhumlu

27.02.2020

Stjórn Auðhumlu ákvað á fundi sínum þann í gær, þann 26. febrúar, að sameina verkefnin Fyrirmyndarbú og Mjólkureftirlitið undir nafninu Gæðaeftirlit Auðhumlu. Stefnt er að því að einfalda nálgun á því hvernig úttektir verða framkvæmdar m.a. með hliðsjón af hlutverki MAST í veitingu starfsleyfa. Frá þessu er sagt á vef Auðhumlu í dag.

Samkvæmt frétt Auðhumlu er þetta gert m.a. vegna þess að þátttaka í verkefninu Fyrirmyndarbú hefur ekki orðið eins og vonir stóðu til í upphafi og rekstur Auðhumlu er viðkvæmur og stendur ekki undir álagsgreiðslum af þessu tagi. Þetta þýðir þó ekki að slakað sé á gæðakröfum eða eftirliti af hálfu Auðhumlu. Hjá Auðhumlu eru starfandi þrír gæðaráðgjafar sem hafa eftirlit með gæðamálum mjólkur og koma til með að gera úttektir hjá framleiðendum þó það verði með öðrum hætti en var í Fyrirmyndarbúsverkefninu. Sigurður Grétarsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri Gæðaeftirlits Auðhumlu, en hann er bændum af góðu kunnur enda með langa starfsreynslu er kemur að mjöltum, mjaltatækni og gæðamálum þeim tengdum.

Þegar að Fyrirmyndarbúsverkefnið fór af stað á sínum tíma var hugmyndin sú, að þetta þyrfti að vera „lifandi plagg“ og ætti að taka mið af aðstæðum á hverjum tíma. Þessar breytingar eru liður í því að þróa verkefnið þannig að það nýtist bændum og afurðastöðvum þeirra sem best í sínu innra gæðaeftirliti. Samhliða þessum breytingum hefur Jarle Reiesen dýralæknir látið af störfum og er honum þökkuð góð störf í þágu bænda og Auðhumlu. Í framhaldi af þessari ákvörðun munu greiðslur fyrir Fyrirmyndarbú falla niður frá 1. maí 2020.

Farið verður ítarlegar yfir málið á komandi deildarfundum Auðhumlu.