Fundargerð aðalfundar FKS – ályktun um sæðingamál
31.01.2013
Félag kúabænda á Suðurlandi hélt aðalfund sinn sl. mánudag. Á fundinum var Valdimar Guðjónsson í Gaulverjabæ kjörinn nýr formaður félagsins, en Þórir Jónsson á Selalæk lét nýverið af formennsku af persónulegum ástæðum. LK óskar Valdimar til hamingju með kjörið, um leið og samtökin þakka Þóri fyrir mjög gott samstarf og óska honum velfarnaðar í framtíðinni. Fundargerð fundarins má lesa með því að smella á hlekkinn neðst í pistlinum.
Fundurinn samþykkti samhljóða svofellda ályktun um sæðingamál:
„FKS telur ekki rétt að sameina sæðingastarfsemi á öllu landinu að svo stöddu. Nýtt ráðgjafafyrirtæki bænda, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf, hefur litið dagsins ljós. Óljóst er ennþá hvernig starfsemi búnaðarsambandanna verður í framhaldinu og hvernig framlögum til kynbótastarfsins verður varið. Það er álit FKS að fyrst eigi að sjá hvernig þessi breyting á ráðgjafaþjónustunni kemur út áður en farið er að skoða sameiningar á sæðingarstarfseminni. Kynbótastöð Suðurlands hefur hagrætt í sínum rekstri og endurskipulagt sæðingarnar. Teljum við nauðsynlegt að aðrir landshlutar reyni einnig að hagræða sem mest í sínum rekstri áður en hægt er að ræða um sameiningar.“/BHB
Fundargerð aðalfundar FKS 28. janúar 2013