Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Fulltrúafundur í dag og bændafundur í kvöld

24.11.2015

Í dag fer fram fulltrúafundur Landssambands kúabænda á Hótel Sögu í Reykjavík og hefst hann klukkan 11. Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

 

1. Fundarsetning og kosning starfsmanna fundarins.

2. Kynning á tillögum að grunnþáttum nýrra samninga um starfsskilyrði nautgriparæktarinnar og umræður um þær.

3. Önnur mál.

 

Fundur þessi er boðaður skv. 6. grein samþykkta Landssambands kúabænda en þar segir: Aukafund skal halda þyki stjórn LK sérstök nauðsyn bera til og jafnan þegar aðildarfélög, eitt eða fleiri, með samtals a.m.k ¼ félagatölu LK, óska þess, enda sé þá fundarefni tilgreint. Aukafund skal boða með minnst 7 daga fyrirvara. Um rétt til fundarsetu á aukafundum gilda sömu reglur og á aðalfundi.

 

Markmið fundarins er að kynna tillögur samningsaðila að grunnþáttum nýrra samninga um starfsskilyrði nautgriparæktarinnar og fá fram sjónarmið aðalfundarfulltrúa gagnvart þeim.

 

Í kvöld mun svo fara fram fyrsti kynningarfundur Bændasamtaka Íslands um þessar tillögur, en samtökin standa fyrir fjórum fundum alls. Á fundinum verða forystumenn bænda með framsögur og umræður verða svo haldnar í kjölfarið.

 

Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum: 

Árhúsum á Hellu, þriðjudaginn 24. nóvember kl. 20.30

Hlíðarbæ í Eyjafirði, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 11.00

Hótel Borgarnesi, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 20.30

Valaskjálf á Egilsstöðum, fimmtudaginn 26. nóvember kl. 11.00

 

Almennir bændafundir verða haldnir í héruðum um allt land þegar samningar verða fullgerðir en þær dagsetningar liggja ekki fyrir. Í kjölfar þeirra verður boðað til atkvæðagreiðslu meðal bænda/SS.