FrieslandCampina jók veltuna
26.09.2012
Hollenskir kúabændur eru væntanlega sáttir við gengi afurðafélags síns FrieslandCampina en velta þess jókst í 820 milljarða íkr fyrstu sex mánuði ársins, eða um 7,6%. Skýringin á góðu gengi felst að sögn félagsins í aukinni sölu á barnamat og mjólkurvörum fyrir börn. Góður rekstrarafgangur varð einnig af félaginu og nam hagnaður þess um 22 milljörðum króna sem er aukning um 8,7% frá sama tímabili í fyrra.
Í fréttatilkynningu félagsins kemur fram að félagið geri ráð fyrir góðum rekstri í ár þrátt fyrir erfiða stöðu á sínum heimamarkaði í Evrópu. Aukin sala í Asíu, Afríku og Mið-Austurlöndum virðist ná að halda góðum gangi í sölunni enn sem komið er/SS.