
Frestur til að skila haustskýrslum framlengdur
21.11.2016
Matvælastofnun vekur athygli á vef sínum að frestur til að skila haustskýrslum hefur verið framlengdur til 1. desember næstkomandi. Í fréttinni kemur m.a. fram að allir búfjáreigendur geti með auðveldum hætti gengið frá haustskýrslu í Bústofni en aðgangur að Bústofni fæst með rafrænum skilríkjum eða kennitölu og Íslykli.
Ennfremur er bent á að þeir sem þurfi á aðstoð að halda geti haft samband við dýraeftirlitsmenn MAST í síma 530-4800 eða í gegnum mast@mast.is.
Þeir sem ekki hafa tök á því að skila sjálfir í gegnum Bústofn stendur til boða þjónusta RML en fyrir þá þjónustu er innheimt samkvæmt gjaldskrá RML/SS.