Framleiðslan minnkar í Bretlandi
19.04.2013
Framleiðsluupplýsingar frá Stóra-Bretlandi fyrir nýliðinn mars sýna gríðarlega mikinn samdrátt í mjólkurframleiðslu frá fyrra ári. Alls voru framleiddir 1.108 milljónir lítra í mánuðinum sem er heilum 7,5% minna en í mars á síðasta ári.
Bráðabirgðauppgjör kvótaárssins 2012 til 2013 í Stóra-Bretlandi, sem lauk einmitt nú í marslok, bendir til þess að framleiðslan hafi numið rétt tæplega 13 milljörðum lítra. Framleiðsluheimild Stóra-Bretlands er mun hærri og vantar 13,6% upp á að kvótinn hafi verið fullnýttur. Samkvæmt erlendum fréttum þarf að fara heil 30 ár aftur í tímann til þess að finna viðlíka fall í framleiðslu á einum mánuði. Skýringin felst fyrst og fremst í hörðum vetri/SS.