Framleiðsla og sala nautgripakjöts 3.400 tonn
15.09.2015
Samkvæmt yfirliti um framleiðslu og sölu á kjöti sem út kom í gær, er framleiðsla og sala nautakjöts undanfarna 12 mánuði 3.400 tonn, það er samdráttur um 3% frá árinu á undan. Þrátt fyrir það eru vísbendingar um að framleiðslan sé að rétta úr kútnum; ef litið er til síðasta ársfjórðungs, sem er tímabilið júní-ágúst, þá er framleiðsla og sala á þeim tíma um þriðjungi meiri en á sama tímabili í fyrra. Þar gætir án efa áhrifa frá verkfalli eftirlitsdýralækna sl. vor, þegar slátrun lá niðri frá 20. apríl til 15. júní og uppsöfnun varð á sláturgripum. Í ágúst sl. var framleiðslan tæplega fjórðungi meiri en á sama tíma í fyrra. Sem fyrr selst öll framleiðslan nánast jafnharðan og birgðir á hverjum tíma nema aðeins nokkurra daga slátrun.
Eins og fram kom hér á síðunni í gær, hefur innflutningur nautgripakjöts verið mikill á þessu ári og lítið minni en á sl. ári. Í töflunni hér að neðan má sjá magn og uppruna innflutningsins eftir löndum, frá janúar til júlí í ár. Upplýsingarnar koma frá Hagstofu Íslands./BHB
Land | Magn kg |
Bandaríkin | 596 |
Belgía | 2.737 |
Bretland | 23.388 |
Danmörk | 87.762 |
Holland | 30.588 |
Ítalía | 4.092 |
Litháen | 15.064 |
Nýja-Sjáland | 47.710 |
Pólland | 42.029 |
Spánn | 34.567 |
Þýskaland | 315.905 |
Samtals | 604.438 |