
Fræðsluverkefni LK komið í loftið
01.09.2017
Í dag hófst fræðsluverkefni á vegum Landssambands kúabænda sem miðar að því að fræða fólk um feril mjólkurframleiðslu og starfsumhverfi kúabænda. Verkefnið ber heitið „Frá haga í maga” og hafa samtökin birt myndband á fésbókarsíðu sinni sem sýnir feril mjólkurinnar allt frá kúnum úti í haga og á borð neytenda. Tilgangur verkefnisins er að færa bændur og neytendur nær hvor öðrum. „Áður fyrr voru tengsl milli þessara hópa mun nánari, flestir voru annað hvort úr sveit eða áttu ömmur og afa sem bjuggu í sveit og þekktu þar af leiðandi frekar matvælaframleiðslu af eigin raun. Með breyttri samfélagsgerð og nýjum kynslóðum hefur bilið milli uppruna matvælanna og neytenda breikkað og þekkingin breyst í takt við það. Með þessu verkefni erum við að freista þess að efla þessi tengsl að nýju.” segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri samtakanna.
Auk myndbandsins hafa samtökin tekið saman fróðlegar upplýsingar um nautgriparækt á Íslandi og einnig útbúið litabók fyrir börn sem hægt er að prenta út að kostnaðarlausu af vefsíðu samtakanna naut.is. „Um leið og við viljum kynna fólki starf kúabóndans lögðum við mikla áherslu á að allt efnið væri áhugavert bæði fyrir börn og fullorðna, svo kynslóðirnar gætu notið þess saman.” segir Margrét ennfremur.
Við hvetjum alla, kúabændur og aðra, til að skoða verkefnið og deila efni þess á samfélagsmiðlasíðum sínum.