Fræðslufundur MAST: Breyttar varnarlínur og sóttvarnir
23.10.2009
Ný auglýsing var birt í lok september sl. um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma sem skilgreinir nýja skiptingu aðal- og aukavarnarlína. Breytingar á varnarlínum og sóttvarnir verða til umfjöllunar á fræðslufundi MAST sem haldinn verður þriðjudaginn 27. október kl. 16:00 – 17:00 í Ásgarði á Hvanneyri.
Á fundinum verður fjallað um sóttvarnir á Íslandi, hættu á komu nýrra sjúkdóma og viðbrögð, ásamt tilkomu varnarlína og sögu þeirra. Farið verður yfir þær breytingar sem hafa verið gerðar á sóttvarnarsvæðum, ástæður þar að baki, áhrif á flutninga búfjár og ávinning og áhættu.
Fyrirlesarar verða:
Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun
Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir nautgripa- og sauðfjársjúkdóma hjá Matvælastofnun
Fræðslufundur er opinn almenningi og verður haldinn á Hvanneyri í húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands í Ársal (Ásgarði). Allir velkomnir!