Forsendur verðlíkans LK breyttust í morgun
24.10.2005
Í morgun voru settar inn nýjar tölur í verðlíkan LK, sem reiknar út verðmæti sláturgripa. Slátrun í september er nú komin inn í líkanið og hefur það þónokkur áhrif á niðurstöðurnar, sér í lagi þar sem hlutfall af UNI Úrval hækkar. Samkvæmt niðurstöðum líkansins er ljóst að sláturhúsin á Suðurlandi, Sláturhúsið á Hellu og Sláturfélag Suðurlands (SS) eru í sérflokki varðandi greiðslur til bænda og greiða þau mun hærri verð til kúabænda en önnur sláturhús. Smelltu hér til þess að skoða nánar niðurstöður verðlíkansins.