Beint í efni

Formaður og framkvæmdastjóri BÍ áttu fund með Einari K. Guðfinnssyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

09.10.2008

Í dag, fimmtudag, áttu formaður og framkvæmdastjóri Bændasamtakanna fund með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Tilgangur fundarins var að fara yfir stöðu landbúnaðar og matvælaöryggismál við þær aðstæður sem nú ríkja í efnahagsmálum landsins.
 
Að sögn Eiríks Blöndal, framkvæmdastjóra BÍ, var m.a. rætt um mikilvægi landbúnaðar í tengslum við matvælaöryggi og að tryggja eins og kostur er að rekstrareiningar haldi áfram framleiðslu. Þá var ítrekað mikilvægi þess við ráðherra að skuldastaða og lausafjárskortur rekstraraðila valdi ekki hruni í framleiðslu og að tryggja þyrfti aðföng eins og kjarnfóður, olíu, áburð, plast og rekstrarvörur úrvinnslufyrirtækja. 

„Farið var yfir þá stöðu að búin eru jafnframt heimili bænda og að efnahagur fjölskyldna og búa er blandaður. Stórfelld hækkun aðfanga umfram verðlagsbreytingar var tíunduð á fundinum. Ráðherra og fulltrúar BÍ eru samstíga um mat á ástandinu og ákveðið var að óska eftir viðræðum við nýstofnaða banka sem fyrst,“ sagði Eiríkur Blöndal.