Fóðurblandan lækkar verð á kjarnfóðri um 2%
02.11.2015
Í ljósi lækkunar á heimsmarkaðsverði hráefna og hagstæðs gengis hefur Fóðurblandan ákveðið að lækka verð á öllu kjarnfóðri. Lækkunin nemur 2% og tekur gildi í dag 2. nóvember. Uppfærða verðskrá má finna á vef Fóðurblöndunnar, www.fodur.is, síðar í dag.
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Fóðurblöndunar.