Fóðurblandan lækkar kjarnfóðurverð um allt að 2,5%
01.10.2015
Fóðurblandan hefur frá upphafi lagt mikið upp úr því að setja viðskiptavininn í öndvegi og vera fyrsti valkostur ábúandans þegar kemur að vöru og þjónustu fyrir býlið. Öll starfsemi fyrirtækisins hefur miðast við að gera samskipti viðskiptavina Fóðurblöndunar sem ánægulegust og árangursríkust. Í ljósi lækkunar á heimsmarkaðsverði hráefna og hagstæðs gengis hefur Fóðurblandan ákveðið að lækka verð á kjarnfóðri fyrir nautgripi. Lækkunin nemur allt að 2,5% og tekur gildi í dag 1. október. Uppfærða verðskrá má finna á vef Fóðurblöndunnar, www.fodur.is
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssvið Fóðurblöndunnar.
Fréttatilkynning frá Fóðurblöndunni