Fóðurblandan lækkar hlutfall fiskimjöls í kjarnfóðurblöndum
23.01.2010
Í gær barst eftirfarandi fréttatilkynning frá Fóðurblöndunni hf:
Ákveðið hefur verið að auka sojainnihald og minnka fiskimjölsinnihald í þeim tegundum kúafóðurs sem í dag innihalda fiskimjöl.
Þetta er gert vegna mjög takmarkaðs framboðs og mikilla verðhækkana á fiskimjöli.
Próteininnihaldið í þeim blöndum verður óbreytt.
Þetta mun þó hafa smávægilegar breytingar á AAT/PBV innihaldi í þeim blöndum.
Aðrar kúafóðurblöndur breytast ekki.
Nýju fóðursamsetningarnar má sjá á heimasíðu Fóðurblöndunnar hf www.fodur.is undir liðnum kúafóður
Allar upplýsingar veitir Erlendur Jóhannsson fóðurfæðingur Fóðurblöndunnar í síma 570-9800 eða póstfangið erlendur@fodur.is