
Fjölmenni við setningu Búnaðarþings í Hörpu
01.03.2014
Búnaðarþing 2014 var sett við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag að viðstöddu fjölmenni. Setningarathöfnin markar upphafið að þriggja daga búnaðarþingi þar sem fulltrúar bænda koma saman og ræða hagsmunamál stéttarinnar, marka stefnu og ráða ráðum sínum. Fjöldi mála liggur fyrir þinginu en formleg störf þess hefjast á morgun sunnudag kl. 10.00.
Setning þingsins fór nú í fyrsta skipti fram í Hörpu en venjan hefur verið sú að setja búnaðarþing í Súlnasal Hótel Sögu. Mikið var um að vera í Hörpu í dag í tengslum við setninguna. Matarmarkaður ljúfmetisverlunarinnar Búrsins var haldinn á jarðhæð, vélasalar voru mættir með dráttarvélar og tæki til sýnis og vakti það mikla athygli og gleði yngstu kynslóðarinnar sem fengu að setjast í vélarnar og skoða í krók og kring. Sauðfjárbændur buðu gestum og gangandi upp á grillað lambakjöt úr grillvagni Landssamtaka sauðfjárbænda og fleira var hægt að smakka. Þá stóð kokkakeppni Food & Fun hátíðarinnar yfir í Norðurljósasal Hörpu á sama tíma og setning Búnaðarþings fór fram.
Ár fjölskyldubúsins
Dagskrá setningarathafnarinnar var öll hin glæsilegasta. Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands flutti setningarræðu þar sem hann lagði út af mikilvægi fjölskyldubúsins í íslenskum landbúnaði enda árið 2014 ár fjölskyldubúsins hjá Sameinuðu þjóðunum. Sindri vakti jafnframt máls á mikilvægi íslensks landbúnaðar í stóru og smáu, ekki síst í samhengi við þann aukna ferðamannafjölda sem til Íslands streymir. Íslenskur landbúnaður, búseta á landsbyggðinni og þjónusta við ferðamenn sem sækja landið heim hlyti alltaf að fara saman. Erlendir ferðamenn sæktust eftir matarupplifun, menningu sveitanna og ferðamennsku um land allt. Þar væru bændur, sumir hverjir sem rekstraraðilar í ferðaþjónustu, lykilleikendur.
Tekur undir með neytendum
Sindri minnti jafnframt á mikilvægi fjölbreytni í búskaparháttu, framleiðslu og úrvinnslu. Mikilvægt væri að hlúa að litlum afurðafyrirtækjum og framleiðslu beint frá býli. Á sama tíma væri gríðarlega mikilvægt að eiga stór og öflug afurðafyrirtæki sem gætu afsett afurðir bænda með hagkvæmum hætti og hefðu styrk til að takast á við sveiflur á markaði. Þá væri rétt og eðlilegt að taka undir með kröfu neytenda um rekjanleika matvæla, innihaldslýsingar og vöruval. Bændasamtökin hefðu í samvinnu við Samtök atvinnulífsins og Neytendasamtökin gert sáttmála um að bæta upprunamerkingar og væri það mikilvægt skref í átt til þess að uppfylla þessar kröfur.
Fossárdalur, Friðheimar og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn hlutu landbúnaðarverðlaun
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs –og landbúnaðarráðherra, veitti landbúnaðarverðlaunin 2014 sem í þetta sinn voru veitt í 18. sinn. Þau komu í hlut ábúenda í Fossárdal í Berufirði, ábúenda í Friðheimum í Bláskógabyggð og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Reykjavík.
Í Fossárdal reka þau Guðný Gréta Eyþórsdóttir og Hafliði Sævarsson sauðfjárbú með á sjötta hundrað vetrarfóðraðar kindur, ferðaþjónustu og skógrækt auk annarra starfa. Fengu þau verðlaunin fyrir fyrirmyndarbúskap í Fossárdal.
Í Friðheimum reka þau Helena Hermundardóttir og Knútur Rafn Ármann stórfellda tómatarækt og einnig rækta þau þar gúrkur. Þá hafa þau tvinnað sama ferðaþjónustu og hestamennsku og taka árlega við þúsundum ferðamanna sem sjá hrossasýningar, skoða garðyrkjuframleiðslu og njóta veitinga í gestastofu. Ábúendur í Friðheimum fengu verðlaunin fyrir frumkvöðlastarf og fyrirmyndarbúskap.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn sem opnaði 1990 hefur frá upphafi gert höfuðborgarbúum kleift að sjá flest helstu húsdýr á Íslandi innan borgarmarkanna. Mikil ásókn er í garðinn og á síðasta ári sóttu um 200 þúsund manns hann heim. Fyrir fræðslu- og kynningarstarf hlaut Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn landbúnaðarverðlaunin 2014.
Setningarræða Sindra Sigurgeirssonar, formanns Bændasamtakanna
/fr/tb
Guðný Gréta Eyþórsdóttir og Hafliði Sævarsson bændur í Fossárdal, Knútur Rafn Ármann og Helena Hermundardóttir í Friðheimum og Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Reykjavík ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ljósm. Hörður Kristjánsson
