Beint í efni

Fjármálaráðgjöf fyrir bændur sem eru í verulegum fjárhagsvanda

07.07.2008

Undanfarin misseri hafa rekstrarskilyrði bænda breyst mjög til verri vegar. Aðgangur og kjör á lánsfé hafa versnað til muna. Miklar hækkanir á aðföngum hafa átt sér stað á heimsmarkaði og til að bæta gráu ofan á svart hefur gengi krónunnar fallið mikið.

Bændasamtök Íslands framkvæmdu skoðanakönnun um þörf bænda fyrir sérstaka fjármálaráðgjöf nú í vor vegna verulegra rekstrarerfiðleika. Niðurstöður hennar bentu til þess að umtalsverð þörf væri fyrir slíka þjónustu. Bændasamtökin hafa því ráðist í aðgerðir til að bregðast við ástandinu. Nánar um fjármálaráðgjöfina hér.