
Fimm prósenta uppbót á afurðaverð SS
16.12.2021
Stjórn Sláturfélags Suðurlands tilkynnti í gær um fimm prósenta afurðaverðshækkun á allt innlegg ársins 2021, þetta kemur fram á vef Bændablaðsins bbl.is.
Í tilkynningu kemur fram að það sé gert til að mæta miklum verðhækkunum á rekstrarvörum bænda. Uppbæturnar verða greiddar út í byrjun janúar og er reiknað með að heildarupphæðin verði um 83 milljónir króna.