Beint í efni

Félagsmenn hvattir til að skrá veltu

11.04.2023

Síðar í vikunni verða sendir út greiðsluseðlar vegna félagsgjalda fyrir árið 2023. Við viljum því hvetja alla félagsmenn til að fara inn á Bændatorgið fyrir 14. apríl 2023 og uppfæra veltutölur sínar fyrir árið 2022.

Til að uppfæra veltutölur þarf að skrá sig inn á Bændatorgið. Smella þarf á valmöguleikanum „Félagssíða“ vinstra megin. Á þeirri síðu fyrir miðju má finna „Velta“ og skal ýtt á blýantinn til breyta veltutölum.
Sé veltunni ekki breytt verður tekið mið af þeim upplýsingum sem þegar eru til staðar.

Ef einhverjar spurningar vakna er hægt hafa samband við skrifstofu Bændasamtakanna í síma 563-0300.