Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Félag eyfirskra kúabænda gagnrýnir harðlega framgöngu landbúnaðarráðherra

09.03.2017

Stjórn Félags eyfirskra kúabænda hefur sent frá sér tilkynningu þar sem félagið gagnrýnir harðlega framgöngu landbúnaðarráðherra vegna birtingu frumvarpsdraga um breytingu á búvöru- og búnaðarlögum er varða endurskoðun á samkeppnisstöðu mjólkuriðnaðarins.

Tilkynning félagsins í heild sinni: „Stjórn Félags eyfirskra kúabænda gagnrýnir harðlega framgöngu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur ráðherra í vegferð sinni að breyttum búvörulögum. Á fjölmennum aðalfundi FEK í Hlíðarbæ á dögunum, fullyrti Þorgerður að samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga myndi fjalla efnislega um þau atriði sem hún hefur nú sett inn í drög að nýju frumvarpi til breytinga á búvörulögum. Engar greiningar liggja fyrir um hvaða áhrif boðaðar breytingar munu hafa á verðþróun mjólkurafurða en ljóst er að jafn róttæk stefnubreyting og hér er um að ræða mun hafa afleiðingar inn í verðlagningu þeirra og mögulega hækka verð til neytenda. Stjórn Félags eyfirskra kúabænda harmar að ráðherra skuli ekki standa við orð sín og velji að sniðganga vilja alþingis og taka þessi efnisatriði út úr endurskoðunar vinnu samráðshópsins. Ennfremur telur stjórn FEK ámælisvert að ráðherrann vilji ekki hafa samráð við forystu bænda um fyrirhugaðar breytingar, líkt og hún hefur áður sagt.
FEK skorar á önnur undirfélög Landsambands Kúabænda að taka afstöðu til málsins.“