Falköpings afurðafélagið í vandræðum
19.05.2016
Vegna mikillar samkeppni á heimsmarkaðinum eiga mörg af smærri afurðafélögunum í töluverðum vandræðum þar sem þau eiga erfitt með að keppa við hina stóru á markaðinum. Þetta á meðal annars við um sænska afurðafélagið Falköpings, en hjá því leggja um 200 sænskir kúabændur inn mjólk sína en í heildina vinnur félagið úr um 215 milljónum lítra árlega en hluti þess magns er keyptur frá öðrum afurðafélögum.
Falköpings hefur ekki getað selt allar mjólkurvörur sínar undanfarið og á sama tíma hefur mjólkurframleiðsla kúabúanna aukist all verulega. Þetta hefur gert það að verkum að afkastageta félagsins hefur verið fullnýtt, m.a. duftframleiðslulínan. Á sama tíma gat félagið ekki dregið úr móttöku á mjólk frá öðrum afurðafélögum þar sem um langtímasamninga var að ræða og því var einungis eitt í stöðunni: að hætta að sækja mjólk til eigendanna sjálfra! Þetta var gert eina helgi í lok apríl og reyndist það nóg til þess að skapa svigrúm hjá Falköpings. Á móti kom að kúabændurnir urðu að hella niður mjólkinni en ætla má að helgarframleiðsla þessara 200 kúabúa nemi um milljón lítrum/SS.